Header Pic Header Pic
Header Pic
 
Header Pic
Header Pic  PfeilForsíða
Header Pic
Header Pic

Félagsfundur LR
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 22 mars 2010

Nú er nýlokinn fjölmennur félagsfundur LR sem fram fór í húsnæði BSRB að Grettisgötu 89.

Snorri Magnússon, formaður LL kom og fór yfir stöðu mála í kjaraviðræðum og voru fundarmenn mjög óánægðir með áhugaleysi SNR og viljaleysi ríkisins til að semja við lögreglumenn.  

 Snorri reifaði nýfallinn dóm félagsdóm. 

Einnig var rætt um skipulagsbreytingarnar sem gerðar voru s.l. sumar hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu (LRH) og upptöku svokallaðs valfrjáls vinnutíma og þess álags sem verið hefur á lögreglumenn frá því breytingarnar tóku gildi og þeirrar undirmönnunar sem vart hefur orðið. Á fundinum kom greinilega fram sú skoðun manna að þessar breytingar hefðu tekist illa og lögreglumenn útkeyrðir af álagi. Nokkur dæmi voru nefnd þess efnis að menn væru á endalausum snúningum með svefninn.

Fundarmönnum var kynnt þau mótmæli sem LR hefur viðhaft vegna nýlegra ráðninga hjá embættinu. Það var tekið skýrrt fram að þessu væri alls ekki beint gegn því ágæta fólki sem hafði verið ráðið heldur yfirstjórn LRH og þá sérstaklega Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra. Fundarmönnum var kynnt að það hefði margoft komið fram í vinnu fulltrúa LR með yfirstjórn LRH að skipulagsbreitingarnar ættu að tryggja lausráðna fólkinu áfram vinnu. Fundarmenn voru einnig minntir á orð Stefáns Eiríkssonar í Kíwanis húsinu sl. vor þegar hann spurði funarmenn hvort þeir ætluðu að verða þess valdandi að þessu fólk (og benti út í sal) yrði sagt upp. Reyndin var síðan önnur þar sem fjórir voru ekki ráðnir þrátt fyrir loforð lögreglustjóra.

Formaður LR kynnti fundarmönnum framkomu og viðmót yfirstjórnar LRH í þeirri vinnu sem hann hefur verið í fyrir hönd LR vegna skipulagsbreytinganna og eftirköst þeirra. Kvað hann að á ýmsu hefði gengið og hann verið sakaður um ýmislegt m.a. að standa í vegi fyrir framþróun innan LRH og að vera að hefna sín á embættinu og framkoma yfirmanna verið fyrir neðan allar hellur og greinilegt að það vantar eitthvað upp á sjálfsstjórn sumra yfirmanna hjá LRH. Formaður LR kvaðst ekki ætla að sitja fleiri fundir fyrir hönd LR með yfirstjórn LRH eins og hún er skipuð í dag.

Það kom skýrt fram hjá fundarmönnum að sú stjórnunaraðferð sem yfirstjórn LRH notar í dag huggnast mönnum illa. Núverandi stjórnunarhættir yfirstjórnar LRH eru verulega íþyngjandi fyrir starfsmenn og byggir upp spennu, sem síðan mun endurspeglast í auknum veikindum.   

Fundurinn ákvað að meðan ekkert miðast í kjaraviðræðum mun LR boða til félagsfundar á hinum ýmsu tímum sólarhringsins eins oft og þurfa þykir og kynna félagsmönnum stöðu mála hvað varðar kjaraviðræður. Stjórn LR harmar virðingarleysið sem lögregumönnum er sýnt af hálfu samningarnefndar ríkisins. Stjórnvöld virðast þrátt fyrir fögur orð ekki vilja beita sér fyrir sátt hvað varðar kjaramál lögreglumanna.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 23 mars 2010 )
 
Landsmót lögreglumanna í innanhússknattspyrnu
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
laugardagur, 20 mars 2010
Nú er nýlokið 35. landsmóti lögreglumanna í innanhúsknattspyrnu sem fram fór í Skagarfirði. Sigurvegarar mótsins var lið RLS  og er það ánægjulegt að bikarinn er aftur kominn á höfuðborgarsvæðið. Lið LRH stóð sig einnig með sóma og lenti í 3. sæti. Lögreglufélag Reykjavíkur óskar báðum liðunum til hamingju með góðan árangur.
Síðast uppfært ( laugardagur, 20 mars 2010 )
 
Almennur félagsfundur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
fimmtudagur, 18 mars 2010

Lögreglufélag Reykjavíkur boðar til almenns félagsfundar mánudaginn 22. mars kl. 13:00 í sal BSRB að Grettisgötu 89.  

Fundar efnið verður m.a.

·     Staða kjaramála

·     Nýafstaðnar breytingar hjá LRH

·     Nýfallinn dómur félagsdóms er varðar vinnutíma lögreglumanna er standa bakvaktir.

·     Nýlegar ráðningar LRH.

·     Önnur mál

Á fundinn mætir Snorri Magnússon, formaður LL og kynnir stöðu mála í kjaraviðræðum og reyfar nýfallinn dóm félagsdóms.

 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 18 mars 2010 )
 
Um veikindarétt
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
föstudagur, 12 mars 2010

Veikindaréttur lögreglumanna skv. kjarasamningi er eftirfarandi:

screen shot 2010-03-12 at 11.49.05 am.png

 

 

Rétt er einnig að benda á eftirfarandi:

screen shot 2010-03-12 at 11.45.20 am.png

 

 

Síðast uppfært ( föstudagur, 12 mars 2010 )
 
Lögreglan nýtur mest traust stofnanna
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 09 mars 2010

Í nýlegum þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að lögreglan nýtur mest traust stofnanna á Íslandi. Lengi vel hefur lögreglan vermt 2. sætið en hefur núna skákað Háskóla Íslands og ber 81% þjóðarinnar traust til lögreglunar. 

 

screen shot 2010-03-09 at 4.38.53 pm.png

 

 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 09 mars 2010 )
Lesa meira...
 
Frá fundi LR og LRH
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 02 mars 2010

Þann 3. febrúar áttu fulltrúar Lögreglufélagsins fund með fulltrúum yfirstjórnar LRH. Hér að neðan gefur að líta á erindin sem rædd voru á fundinum og niðurstöðuna í grófum dráttum. Rétt er að taka fram að þetta er ekki fundargerð fundarins.

 

     Mönnun/undirmönnun og skipulag aukavinnu

Stjórn LR lýsti yfir áhyggjum sínum á að það er að koma alltof oft fyrir að vaktir eru ekki mannaðar skv. samkomulaginu og benti einnig á að talsvert ósamræmi væri oft á því hvernig vaktirnar á stöðvunum væru mannaðar. Nefnt var sem dæmi að stundum kæmi það fyrir að 6 væru á næturvakt í miðri viku og svo væru 2 á vakt nóttina á eftir.

Einnig var skiplag aukavinnu rætt og kom fram að þegar lögreglumenn væru búnir að pannta sér frí og fá það staðfest ætti ekki að breyta því eða hringja í þá og kalla á aukavakt. 

     Viðhorfskönnun

Óskað var eftir að viðhorfskönnunin yrði framkvæmd eins og samkomulagið segði til um. Sigríður Hrefna kvað miskilning hafa valdið því að ekki hefði verið farið í viðhorfskönunina. Kvaðst hún ætla fara strax í þetta mál.

     Ráðningar, hvernig var staðið að þeim

Stjórn LR lýsti yfir óánægju sinni með því hvernig hefði verið staðið að ráðningum á lögreglumönnum nú um áramótin. Stjórn LR minnti á loforð lögreglustjóra þess efnis að ef farið yrði í breytingar á vaktkerfi myndi það tryggja mönnum ráðningu. Minnt var á að lögreglustjóri hefði spurt á fundi með lögreglumönnum á Engjateig í vor hvort lögreglumenn ætluðu að vera þess valdandi að félagar þeirra myndu missa vinnuna. Stjórn LR benti á að ítrekað hafði því verið haldið á lofti að með því að breyta um vaktkerfi myndi það skapa svigrúm til að tryggja þeim sem væru með tímabundinn samning áfram störf. Fulltrúar yfirstjórnar LRH voru þessu ósammála og kváðu að ef lögreglustjóri hefði lofað þessu hefði hann verið að tala um stöðurnar en ekki menninna sjálfa. Óhætt að segja að fundarmenn voru langt frá því sammála og spunnust nokkrar umræður um þetta.

     Skipulag sumarleyfis 

Geir Jón kvað skipulag sumarleyfis vera með sama hætti og síðustu ár, þ.e.að mánuðir rúlla. Sá sem átti júní frí í fyrra fengi júlí frí í ár o.s.frv.Kvað hann þetta megnin regluna en að sjálfsögðu gætu komið uppundantekningartilfelli þar sem breyta þyrfti út af þessari reglu til að tryggja fullnægjandi löggæslu.

     Erindi frá Vinnueftirlitinu

Stjórn LR var kunnugt um erindi frá Vinnueftirlitinu sem hafði nýlega veriðsent á embættið vegna vinnutíma. Fulltrúum yfirstjórnar hafði ekki borist það og var þessari umræðu því frestað. 

     Fjarvistir og álag

Spurt var hvort aukning hefði orðið í veikindum og einnig bent á það álag sem er á mönnum. Einnig var rætt hversu illa raðaðist stundum inn í kerfið og menn væru í endalausum snúningum á svefni til að geta mætt á vaktir. Sigríður Hrefna kvað embættið vera að skoða hvort veikindi hefðu aukist og einnig átti að skoða hvort ekki væri hægt að laga niðurröðunina á vaktir.

     Árshátið LRH

Spurt var um skipulag á vöktum á árshátiðinni. Geir Jón sagði að það yrði með sama sniði og síðustu ár. Þeir sem væru á kvöldvakt fengju að fara fyrr heim, næturvakt fengi frí og dagvakt fengi að koma seinna daginn eftir.  Stjórn LR lýsti ánægju sinni með þetta og kvaðst styrkja félagsmenn sína til að komast á árshátíðina eins og síðustu ár.

     Sýnileiki á punktastöðu í vinnuskráningarkerfinu

Bent var á að menn gætu ekki séð punktastöðu sína í vinnuskráningarkerfinu.Fram kom að þetta væri líklega tæknilegs eðilis og átti að athuga hvort ekkiværi hægt að laga þetta.

     Starfslýsingar eftir skipulagsbreytingar

            Er í vinnslu

     Samráðsfundur

Kvartað hafði verið til stjórnar LR um að talsverður losarabragur væri á samráðsfundunum. Fulltrúar yfirstjórnar LRH könnuðust ekki við það en ætluðu að skoða málið.

 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 03 mars 2010 )
 
Kosning fulltrúa LR til stjórnar LL - niðurstaða
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 02 mars 2010
Kosning til stjórnar LL er lokið hjá svæðisdeildinni Lögreglufélag Reykjavíkur. Sjö sæti voru í boði og sóttust tíu eftir kjöri. 423 voru á kjörskrá og greiddu 212 atkvæði eða 50,12%. Niðurstaða kosningarinnar var eftirfarandi:
 
screen shot 2010-03-02 at 12.08.26 am.png
 
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 02 mars 2010 )
 
Framboð til stjórnar LL
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 22 febrúar 2010
 Í samræmi við 26. grein laga LL. stendur Lögreglufélag Reykjavíkur fyrir kosningu til stjórnar LL.  Skv. 26. grein laga LL skulu 7 menn frá höfuðborgarsvæðinu vera í stjórn LL. Lögreglufélag Reykjavíkur auglýsti eftir áhugasömum aðlilum og gáfu eftirfarandi kost á sér til starfsins: 
 
Einar G. Guðjónsson 
Einar Júlíusson
Gísli Jökull Gíslason
Guðmundur Fylkisson
Heiða Rafnsdóttir
Hlynur Steinn Þorvaldsson
Magnús Jónasson
Ríkharður Örn Steingrímsson
Runólfur Þórhallsson
Tómas Frosti Sæmundsson

 

Kosið verður til stjórnar LL á næstu dögum og munu lögreglumenn á starfsvæði svæðisdeildarinnar LR fá senda veflykla á vinnunetföng sín.  

 

Síðast uppfært ( mánudagur, 22 febrúar 2010 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 10 - 18 af 224
Til fróðleiks

Vissir þú að félagsheimilið er byggt af lögreglumönnum

 
Advertisement
Könnun
Hverjir eru tengdir
Við höfum 7 gesti tengda
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Header Pic
left unten right unten