Header Pic Header Pic
Header Pic
 
Header Pic
Header Pic  PfeilForsíða
Header Pic
Header Pic

Jólaball Lögreglufélags Reykjavíkur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
miðvikudagur, 24 desember 2008
 
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 janúar 2009 )
Lesa meira...
 
12 mánaða fangelsi fyrir árás á lögreglumann
Dómar - Héraðsdómar
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 22 desember 2008

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tæplega fimmtugan karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir árás á lögreglumann. Maðurinn var í febrúar í fyrra dæmdur fyrir árás á lögreglumann. Sá dómur var skilorðsbundinn og með broti sínu nú rauf maðurinn því skilorðið.

Frá þessu var greint á mbl.is: sjá nánar á http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/22/12_manada_fangelsi_fyrir_aras_a_logreglumann/

 Sjá einnig á vef Héraðsdóms Reykjaness: http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200800705&Domur=3&type=1&Serial=1&Words=

 

Síðast uppfært ( mánudagur, 22 desember 2008 )
 
Knattspyrnuleikur ársins - úrslit
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
fimmtudagur, 18 desember 2008

Þá er knattspyrnuleik ársins lokið og eru úrslitin eftirfarandi:

RLS 4 - 3 LRH

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 18 desember 2008 )
 
RLS vs. LRH
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 15 desember 2008
Knattspyrnuleikur ársins fer fram á miðvikudaginn 19. desember kl. 19:30. Knattspyrnuleikur þessi fer fram í knattspyrnuhúsinu Kórnum, við Vallarkór í Kópavogi. Þarna munu lið RLS og LRH eigast við, en síðasti leikur endaði með jafntefli.
Ókeypis er inn á leikinn og eru allir unnendur góðra knattspyrnu hvattir til að mæta tímanlega þar sem einungis 50.000 áhorfendur komast að Smile
 
Jólatónleikar
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 15 desember 2008
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 janúar 2009 )
Lesa meira...
 
Frá stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 25 nóvember 2008

Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt á stjórnarfundi 24. nóv. og hún send til lögreglustjóra LRH.

Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur harmar þá málsmeðferð sem nýleg ráðning hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu á aðstoðaryfirlögregluþjóni og lögreglufulltrúa hefur fengið. Sú málsmeðferð er algjörlega á skjön við þær reglur sem ríkislögreglustjóri hefur sett um ráðningu og ummæli lögreglustjóra sjálfs.
Skv. umburðarbréfi frá ríkislögreglustjóra dagsett 24. október 2000 er vakin athygli lögreglustjóra á áliti Umboðsmanns Alþingis, um að auglýsa skuli embætti laus til umsóknar, þó um tímabundna ráðningu sé að ræða. Einnig er rétt að vekja athygli á nýlegu umburðarbréfi frá ríkislögreglustjóra þann 21. október 2008 þar sem það er einnig bent á að auglýsa skuli stöðu áður en hún er veitt.
Ennfremur vill stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur vekja athygli á umburðarbréfi  ríkislögreglustjóra dagsett 27. desember 2004 en þar er skýrt kveðið á um að ekki skuli sett í stöður til reynslu heldur skuli skipa í fastar stöður.
Það vekur einnig furðu stjórnar Lögreglufélags Reykjavíkur að þrátt fyrir að lögreglustjóri LRH hafa sagt okkur á fundi að það sé ekki til fjármagn til að ráða fleiri lögreglumenn í almennudeild eða rannsóknardeild, virðist vera til fjármagn til að ráða yfirmenn, sem þó eru dýrari starfskraftur.
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 25 nóvember 2008 )
 
Stórefla þarf viðbúnað lögreglu
Fréttir - Fréttir frá starfinu
Skrifað af Karl Jóhann   
föstudagur, 14 nóvember 2008

Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Snorra Magnússon, formann LL þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af þróuninni í lögreglumálum sem eigi sér rætur í gríðalegum fjárskorti og mannfæð.  Einnig er haft eftir Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra að lögreglan sé undir það búin að takast á við þau verkefni sem við blasi hverju sinni.

 Hér að neðan má sjá fréttina í heild:

„Það er ljóst að stórefla þarf viðbúnað og viðbragðsáætlun lögreglu fyrir komandi laugardag,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, um stöðu lögreglunnar í núverandi þjóðfélagsástandi.
Snorri telur brýna þörf á auknum fjármunum til lögreglu. Hann nefnir mótmælin í Reykjavík undanfarnar helgar, þar sem þátttakendum hafi stórfjölgað frá einum laugardegi til annars. „Hiti er að aukast í mönnum og ég tel að það þurfi lítinn neista til að kveikja stórt bál því reiði almennings er orðin gríðarleg.“
Snorri bendir á að Landssamband lögreglumanna hafi ítrekað gagnrýnt ástand lögreglumála og lýst yfir áhyggjum af þróuninni, sem eigi sér rætur í gríðarlegum fjárskorti og mannfæð.
„Við viljum bæta búnað lögreglumanna, hvort sem um er að ræða hlífðarbúnað eða annan varnarbúnað. Við viljumeinnig sjá fjölgun lögreglumanna. Við erum fólk eins og annað fólk í landinu og eigum okkar fjölskyldur. Það er orðin mikil þörf á viðbótarmannskap svo fólk geti komið upp og náð andanum,“ segir Snorri.
„Við erum undir það búin að takast á við þau verkefni sem við okkur blasa hverju sinni,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Hann vill ekki segja til um hvort viðbúnaður verði aukinn vegna mótmælanna á laugardag. „Við eigum að sjá til þess að þetta geti gengið vel fyrir sig, mótmælendur fái tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri með friðsömum og lögmætum hætti.“  Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Síðast uppfært ( föstudagur, 14 nóvember 2008 )
 
Samkomulag samþykkt
Kjaramál - Hækkanir
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 10 nóvember 2008

Samkomulag um framlenginu á kjarasamningi milli Landssambands lögreglumanna og ríkisins var samþykkt með miklum meirihluta þeirra sem tóku afstöðu. Sjá nánar á: http://www.ll.bsrb.is/

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 82 - 90 af 224
Til fróðleiks
Vissir þú að LR starfrækir slysa og sjúkrasjóð fyrir sína félagsmenn, hann er til viðbótar við fjölskyldu og sjúkrasjóð LL
 
Advertisement
Könnun
Hverjir eru tengdir
Við höfum 7 gesti tengda
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Header Pic
left unten right unten