Header Pic Header Pic
Header Pic
 
Header Pic
Header Pic  PfeilForsíða
Header Pic
Header Pic

Vaktkerfismál
Kjaramál - Fréttir af kjaramálum
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 24 febrúar 2009

Síðustu daga hefur Arinbjörn Snorrason setið fundi með yfirstjórn LRH, sem fulltrúi stjórnar Lögreglufélags Reykjavíkur. Efni þessara funda hefur verið sú hugmyndafræði sem kynnt hefur verið af yfirstjórn LRH um skipulagsbreytingar á embættinu. Einhverja hluta vegna hefur hugmyndafræðin að miklu leyti byggst á breytingum á núverandi fimm vaktakerfi almennudeildar. Yfirstjórn LRH hefur einblínt á fjögura vakta kerfi sem m.a. byggir á 12 tíma vöktum. Þessi vaktkerfi hafa á engan hátt hugnast stjórn Lögreglufélagsins.

Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur hefur lagt ríka áherslu á að standa vörð um núverandi fimm vaktakerfi að eins miklu leyti og mögulegt er. Sú ákvörðun stjórnar Lögreglufélagsins er að mestu leiti vegna heilsu- og fjölskyldusjónamiða og í samræmi við stefnu embættisins um fjölskylduvænt vinnuumhverfi.

Ítrekað hefur Lögreglufélagið boðið yfirstjórn LRH að fara þess á leit við lögreglumenn á fimm vaktakerfi almennudeildar að endurskoða tímabundið reglur um úttekt á vinnuskilum (afplánun). En virði þess tilboðs er upp á marga tugi milljóna.

Í dag þáði yfirstjórn LRH boð Lögreglufélagsins. Ljóst er því að núverandi vaktkerfi verður að öllum líkindum út þetta almanaksár ef breytingar á reglum um vinnuskilum verða samþykktar eða þangað til samkomulag um eitthvað annað semst. Einnig kom fram að hugmyndir að fyrirhuguðum skipulagsbreytingum verða að öllum líkindum ekki í þeirri mynd sem boðaðar voru.

Þess skal getið að allt sem er kynnt í nafni Lögreglufélags Reykjavíkur um þessi málefni mun koma frá stjórnarmönnum eða kynnt hér á vefnum

 
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 25 febrúar 2009 )
 
Vaktkerfismál
Fréttir - Fréttir frá starfinu
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 10 febrúar 2009
Á morgun, 11. febrúar munu Óskar Sigurpálsson, formaður LR og Snorri Magnússon, formaður LL eiga fund með Stefáni Eirikssyni, lögreglustjóra LRH. Efni fundarins mun vera að fara yfir stöðuna í vaktkerfismálum og fyrirhugaðar breytingar.
Það skal tekið fram að stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur hefur lýst sig alfarið andvíga 12 tíma vaktkerfi og telur það vera afturför í kjara- og öryggismálum lögreglumanna. Allar rannsóknir sem gerðar hafa verið sýna fram á aukna slysatíðni og hættu fyrir þá sem vinna á 12 tíma vaktkerfi auk þess sem veikindi aukast.
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 10 febrúar 2009 )
 
Fundir um vaktkerfismál
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
miðvikudagur, 04 febrúar 2009

Nú er ný lokið fundi hjá Lögreglufélagi Reykjavíkur um fyrirhugaðar vaktkerfis breytingar hjá LRH. Um 50 manns sóttu fundinn og var greinilegt að mikill hluti fundarmanna hugnaðist illa að fara á 12 tíma vaktkerfi.

Margt var rætt og margar hugmyndir komu fram um hvernig væri hægt að leysa fjárhagsvanda LRH en enginn ályktun var samþykkt á fundinum. Þó var því komið á framfæri við Geir Jón Þórisson að yfirstjórn LRH væri hvött til að skoða hvort fyrirhugaðar skipulagsbreytingar væru ekki mögulegar með 8 tíma vaktkerfi og kvaðst Geir Jón ætla að koma því á framfæri.

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 04 febrúar 2009 )
 
Fundur um vaktkerfismál
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 03 febrúar 2009
Lögreglufélag Reykjavíkur heldur fund um vaktkerfismál í kjölfar fyrirhugaðrar breytinga hjá LRH. Allir lögreglumenn sem vinna á núverandi vaktkerfi og þeim sem ætlað er að vinna á nýja vaktkerfinu eru hvattir til að mæta.
Fundurinn er í húsnæði BSRB að Grettisgötu og hefts kl. 16:30. 
 
Vaktkerfismál
Kjaramál - Fréttir af kjaramálum
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 04 mars 2008

Það skal ítrekað að það er skoðun Lögreglufélags Reykjavíkur að ef koma á nýtt vaktkerfi þarf að kjósa um það. Umræða hefur verið að koma eigi nýtt vaktakerfi með 12 tíma vinnutíma. Ljóst er að ef þannig vaktkerfi á að koma þarf að kjósa milli þess sem fyrir er og hins nýja. Rétt er að minna á orð Geir Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns og Árna Þórs Sigmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á fundi yfirstjóranar með fulltrúm vakta í almennudeild og fulltrúm LR, að það standi ekki til að þvinga á vaktkerfi því skv. kjarasamningum þurfi að kjósa um það.

Sjá nánar:

 http://www.logreglufelag.is/index.php?option=com_content&task=view&id=176&Itemid=1

http://www.logreglufelag.is/index.php?option=com_content&task=view&id=210&Itemid=1

 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 03 febrúar 2009 )
 
Fundarboð
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
fimmtudagur, 29 janúar 2009
Lögreglufélag Reykjavíkur boðar til fundar.
 
Efni fundarins er álag á lögreglumenn og sérstaklega ætlað þeim lögreglumönnum sem hafa verið í mannfjöldastjónunarhópum og þeim sem voru á vettvangum óeirða síðusta daga. Að sjálfsögðu eru allir lögreglumenn velkomnir.
Framsögu hafa sr. Kjartan Örn og Rúnar Andrason, sálfræðingur. 
Fundurinn fer fram í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík, Laufásvegi 13, þriðjudaginn 3. febrúar, kl.16:00 
Síðast uppfært ( föstudagur, 30 janúar 2009 )
 
Úrsögn úr BSRB
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
laugardagur, 24 janúar 2009
Það er skoðun stjórnar Lögreglufélags Reykjavíkur að Landssamband lögreglumanna eigi að kanna hug lögreglumanna til úrsagnar úr BSRB.
Að gefnu tilefni er rétt að benda á ályktun sem formaður og varaformaður LR báru upp á 27. þingi LL ásamt Guðmundi Fylkissyni. Ályktunin var samþykkt og er hún eftirfarandi:
"XXVII. þing LL haldið í Munaðarnesi 2. - 4. maí 2006 felur stjórn LL að fara í vinnu er lýtur að úrsögn úr BSRB."
Eftirfarandi ályktun er enn í gildi og leggur fyrir stjórn LL að fara í þessa vinnu.
Síðast uppfært ( laugardagur, 24 janúar 2009 )
 
Launatafla frá 1. nóv 2008
Kjaramál - Launatöflur
Skrifað af Karl Jóhann   
fimmtudagur, 08 janúar 2009

Landssamband lögreglumanna hefur birt launatöflu sem gildir frá 1. nóv 2008.

 Launatöfluna má sjá á eftirfarandi: http://www.ll.bsrb.is/skjol/launatafla_20081101.xls

Það er fróðlegt fyrir þá sem kynna sér launatöfluna að geta þess að hámarks atvinnuleysisbætur eru kr. 220.729 miðað við óskerta tekjutengda atvinnuleysistryggingu. Grunnlaun lögreglumanns eftir skóla er kr. 201.502.

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 08 janúar 2009 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 73 - 81 af 224
Til fróðleiks
Vissir þú að Lögreglufélag Reykjavíkur var stofnað árið 1935?
 
Advertisement
Könnun
Hverjir eru tengdir
Við höfum 7 gesti tengda
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Header Pic
left unten right unten