Kópavogur 01.04.2009
Niðurstöður talningar
Kjörstjórnar Lögreglufélags Reykjavíkur
Á kjörskrá voru 268 og greiddu 127 atkvæði eða 47,4 % og skiptust kosningar í tvennt, annars vegar formannskjör og hinsvegar kjör til stjórnar.
Í kosningu til formanns voru 4 seðlar auðir og féllu því 123 atkvæði á milli Arinbjarnar Snorrasonar og Guðmundar Fylkissonar.
Arinbjörn Snorrason fékk 74 atkvæði Guðmundur Fylkisson fékk 49 atkvæði
Arinbjörn telst því rétt kjörinn formaður LR.
Í stjórnarkjöri voru 2 auðir seðlar og 3 voru ógildir en það þurfti að greiða nákvæmlega 8 frambjóðendum atkvæði. Því töldust 122 seðlar gildir og skiptust því 976 atkvæði á milli manna eftir því sem hér greinir. Stjórnarmönnum er raðað á lista eftir fjölda atkvæða.
Aðalbergur Sveinsson 113 Bylgja Hrönn Baldursdóttir 111
Börkur Árnason 109 Karl J. Sigurðsson 109
Eiríkur B. Ragnarsson 104 Friðrik Brynjarsson 97
Ingólfur Már Ingólfsson 92 Björgvin Ingvason 90
Óskar Gunnar Óskarsson 90 Einar G. Guðjónsson 61
Þar sem atkvæði féllu jöfn á milli Björgvins Ingvasonar og Óskars Gunnars Óskarssonar þá var hlutkesti kastað til að velja á milli þeirra og kom hlutur Björgvins Ingvasonar upp. Björgvin telst því síðasti stjórnarmaðurinn sem er kosinn inn.
Með þessu hefur kjörstjórn lokið talningu og skilar frá sér sínu verki.
Virðingarfyllst,
Einar Guðberg Jónsson, formaður kjörstjórnar.
Eiríkur Óskar Jónsson Gísli Jökull Gíslason