|
Breytingu á vaktkerfi almennudeildar frestað |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
þriðjudagur, 28 apríl 2009 |
|
Stefán Eiriksson lögreglustjóri LRH hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðum breytingum á almennudeild til 1. september. Þessi frestun nær til vinnutíma og starfsvettvangs og munu því vaktirnar starfa áfram miðlægt. Aðrað breytingar er snúa að rannsóknardeildum og forvarndardeild munu standa.
Frekar verður greint frá frestuninni síðar.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 28 apríl 2009 )
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 27 apríl 2009 |
|
Fundur
Lögreglufélag Reykjavíkur boðar til almenns félagsfundar í dag, þriðjudaginn 28. apríl kl. 15:30 að Engjategi 11 (Kiwanishúsið). Efni fundarins eru fyrirhugaðar breytingar á vinnutíma sem eiga að taka gildi 1.maí. Allir lögreglumenn LRH sem málið varðar eru hvattir til að mæta.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 28 apríl 2009 )
|
|
Stjórnarfundur LR 21.04.2009 |
|
Fundargerð stjórnar LR -
Fundargerð stjórnar LR
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
miðvikudagur, 22 apríl 2009 |
|
21.04.2009 að Krókhálsi 5b kl. 18:15
Mættir voru; Arinbjörn Snorrason (AS), Karl Jóhann Sigurðsson(KJS), Bylgja Baldursdóttir(BB), Aðalbergur Sveinsson (Asv), Eiríkur B Ragnarsson(EBR), Friðrik Brynjarsson(FB), Ingólfur M. Ingólfsson(IMI) og Björgvin Ingvason(BI)
AS stakk upp á því að KJS yrði varaformaður, BHB ritari og ASv gjaldkeri. Samþykkt af öllum fundamönnum.
AS óskaði eftir því að menn yrðu duglegir að mæta á fundi og meðal annars þyrfti nú þegar að huga að félagatalinu og halda utan um það betur en gert hefur verið og einnig að halda þyrfti betur utan um afmæli og merkjaveitingar hjá félaginu.
IMI lagði til að fulltrúi úr hverri deild hjá embættinu auk þess sem fulltrúar af hverri vakt myndu sjá um að kanna hverjir væru ekki í félaginu og þá hvort að þeir hefðu áhuga á að ganga í það. IMI var falið af stjórninni að vinna að félagaskránni.
Farið á hundavaði yfir það sem fráfarandi stjórn hefur gert síðustu vikur til kynningar fyrir nýja stjórnarmenn.
FB stakk upp á því að LR myndi leitast eftir stuðningi annarra lögreglufélaga á landinu í baráttunni um vaktkerfismál því vissulega væru vinnubrögð hjá stærsta embætti landsins fordæmisgefandi fyrir minni lið úti á landi. Þá stakk hann upp á því að leitast yrði eftir opinberum stuðningi frá öðrum félögum sbr. BSRB.
Fundi slitið.
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 22 apríl 2009 )
|
|
Aðalfundur Lögreglufélags Reykjavíkur |
|
Fundargerð stjórnar LR -
Fundargerð stjórnar LR
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
miðvikudagur, 22 apríl 2009 |
|
Aðalfundur LR
haldinn að Krókhálsi 5b þriðjudaginn 21.04.2009 kl. 16:30
Dagskrá aðalfundar
-
•1. Fundarsetning
-
•2. Kosning fundarstjóra
-
•3. Kosning fundarritara
-
•4. Skýrsla stjórnar
-
•5. Reikningar félagsins
-
•6. Reikningar lögreglusjóðs og sjúkrasjóðs
-
•7. Kosning fulltrúa og jafn margra varafulltrúa í eftirtaldar stjórnir og nefndir:
•a) 3 menn í stjórn Lögreglusjóðs
•b) 3 menn í minningarsjóð Erlings Pálssonar
-
•8. Kosning kjörstjórnar sbr. 8.gr.laganna
-
•9. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara
-
•10. Lagabreytingar
-
•11. Önnur mál
-
•12. Fundarslit
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 22 apríl 2009 )
|
|
Lesa meira...
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 13 apríl 2009 |
|
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 22 apríl 2009 )
|
|
Lesa meira...
|
|
Ályktun félagsfundar vegna vaktkerfisbreytinga |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
þriðjudagur, 07 apríl 2009 |
|
Almennur félagsfundur Landssambands lögreglumanna (LL) og lögreglufélags Reykjavíkur (LR) var haldinn í húsakynnum BSRB við Grettisgötu 89, þriðjudaginn 7. apríl 2009, kl. 15:30.
Fundurinn var haldinn til að ræða fyrirhugaðar vaktkerfisbreytingar sem boðaðar hafa verið hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðisins (LRH), kynna lögreglumönnum þá vinnu sem þegar hefur verið unnin varðandi fyrirhugaðar vaktkerfisbreytingar og kalla eftir viðhorfum lögreglumanna til breytinganna.
Fundinn sóttu um áttatíu (80) lögreglumenn.
Fundurinn ályktar:
Almennur félagsfundur LL og LR skorar á yfirstjórn LRH að fresta fram á haust 2009 fyrirhuguðum vaktkerfisbreytingum og að þegar í stað verði komið á vinnuhópi fulltrúa LRH og fulltrúum lögreglumanna til að vinna nánar að vaktkerfisbreytingum hjá embættinu.
Að í framhaldi þeirrar vinnu verði samið við LR um nýtt vaktkerfi líkt og gert hefur verið við allar vaktkerfisbreytingar hjá forrennurum embættisins.
Ekki verði farið að vinna eftir nýju vaktkerfi fyrr en skriflegur samningur um það liggur fyrir.
Verði ekki farið að kröfum félaganna sbr. ofanritað sér fundurinn nauðugan kost einan að lýsa yfir fullu vantrausti á vinnubrögð yfirstjórnar LRH í þessu breytingaferli.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 07 apríl 2009 )
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 06 apríl 2009 |
|
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 22 apríl 2009 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 55 - 63 af 224 |