Header Pic Header Pic
Header Pic
 
Header Pic
Header Pic  PfeilForsíða
Header Pic
Header Pic

Yfirlýsing frá stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 21 júlí 2009

Stjórn Lögregluféalgs Reykjavíkur (LR) getur ekki annað en tekið undir sjónarmið lögreglumanns sem kom fram í bréfi er birt var á visir.is þann 21/7 og skorar í framhaldi af því á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðan niðurskurð fjármála til lögreglu.

Stjórn LR hefur ítrekað bent á versnandi ástand í löggæslumálum, öryggi lögreglumanna og öryggi íbúa en talað fyrir daufum eyrum.

Nýjar tölur emættis Ríkislögreglustjóra hafa jafnframt varpað en frekara ljósi á ástandið er varðar aukna glæpi og öryggi íbúa og undirstrikar með því orð LR í þeim málum.

LR tekur einnig fram að þetta bréf er ekki skoðun þessa eina lögreglumanns heldur endurspeglar hug flestra félagsmanna. Stjórn LR getur staðfest að lögreglumenn hafi í auknum mæli lýst yfir áhyggjum sínum af eigin öryggi í starfi.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 21 júlí 2009 )
 
Neyðarkall frá lögreglumanni
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 21 júlí 2009

Eftirfarandi frétt birtist á visi.is í dag: 

Neyðarkall frá lögreglumanni

skrifar:

Lögreglumönnum er stefnt í hættu vegna fámennis í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í sumum tilfellum eru þeir einir á bílum, jafnvel á næturvöktum um helgar. Þetta kemur fram í bréfi sem fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 fékk sent í gærkvöld frá manni sem segist vera lögreglumaður. Maðurinn segist ekki koma fram undir nafni af ótta við yfirstjórn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir að efni tölvupóstsins eigi aftur á móti erindi inn á heimili landsmanna þar sem þeir eigi rétt á að vita hvernig komið sé fyrir löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn segir að lögreglubifreiðar á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu séu 5-7, en auk þess hafi deildin yfir nokkrum hjólum að ráða. Stundum sé einn bíll til staðar frá lögreglunni og jafnvel tveir.

Maðurinn segir að þetta hafi valdið vandamálum. Nefnir hann nýleg dæmi, yfirstandandi innbrot í Mosfellsbæ þar sem næsta lögreglubifreið hafi verið á Sæbraut. Slagsmál í Lindahverfi Kópavogs þar sem næsta lausa lögreglubifreið hafi verið í 101 Reykjavík. Lögreglubifreið úr Hafnarfirði sé sífellt í Breiðholtinu til að aðstoða Kópavogsbifreið og er Hafnarfjörður jafnan óvarinn á meðan.

Lögreglumönnum stefnt í hættu


„Við þessu var brugðist með því að setja lögreglumenn eina á bíl. Eitthvað sem að mati lögreglumanna er hættulegt. Lögreglumenn hafa jafnvel verið einir á bifreiðum á næturvöktum um helgar. Vegna sífelldra niðurskurða er svo komið að þessi aðgerð hefur mistekist og núna eru færri lögreglumenn á færri lögreglubifreiðum en áður," segir í tölvupósti mannsins.

Síðast uppfært ( föstudagur, 24 júlí 2009 )
Lesa meira...
 
Vegna starfsdags
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
miðvikudagur, 03 júní 2009
Yfirstjórn LRH hefur dregið til baka skipulagningu á skilum á starfsdegi skv. framlögðu skjali.
 
Ályktun stjórnar
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 02 júní 2009

Á stjórnarfundi Lögreglufélags Reyjavíkur 2. júni var eftirfandi ályktun samþykkt:

"Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur leggur fyrir lögreglumenn að vinna ekki starfsdaginn eins og yfirstjórn LRH hefur skipulagt. Sú skipulagning er á engan hátt í samræmi við tillögu LR um breytingar á skil á starfsdegi.

Ályktun þessi er sett fram þar sem fjöldi lögreglumanna hefur sett sig í samband við stjórn LR og lýst óánægju sinni með framkvæmd skila á starfsdegi. "

Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur lítur svo á að þeir vinnudagar sem settir hafa verið á lögreglumenn séu ekki í samræmi við viljayfirlýsingu um vaktkerfismál LRH dagsett 24. febrúar 2009 (http://www.logreglufelag.is/index.php?option=com_content&task=view&id=314&Itemid=38). Ef stjórn LRH ætlar að láta lögreglumenn vinna skv. framlögðu skjali hlýtur lögreglumönnum að vera greidd yfirvinna fyrir þá vinnu.

Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra hefur verið send ályktuninn.

Síðast uppfært ( mánudagur, 29 júní 2009 )
 
Norðurlandameistarar
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
laugardagur, 23 maí 2009

Karlalið ÍSL (Íþróttasamband lögreglunnar) í handbolta varð í dag Norðurlandameistari eftir frækinn sigur á Norðmönnum 26 - 25.  Til hamingju með þennan frábæra árangur!!!

 
Bekkpressumót
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
miðvikudagur, 06 maí 2009

Bekkpressumót ÍFL verður haldið í æfingasal Lögregluskólans þriðjudaginn 12. maí kl. 16.00.

 

Væntanlegir keppendur vinsamlegast sendið  þátttökutilkynningu til Óskar Sigurpálsson á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það fyrir 15. maí, þar sem fram kemur þyngdarflokkur. Hjá körlum verður keppt í  85 kg fl., 100 kg fl., og +100 kg fl.  Hjá konum verður keppt í 60 kg fl. og +60 kg fl.

 

Keppendur þurfa að mæta kl. 15.20 á keppnisstað.

 

Fyrir hönd ÍFL

Óskar Sigurpálsson

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 06 maí 2009 )
 
Frá formanni Lögreglufélags Reykjavíkur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
sunnudagur, 03 maí 2009
 

                                                                                                         Kópavogur 3 mai 2009

Ágætu félagar.

Nú fer að bresta á vinna með fulltrúm lögreglumanna á sólarhringsvöktum ásamt fulltrúm LRH.  Tilgangur þessa er að koma á valfrjálsum vinnutíma hjá þeim sem ganga sólarhringsvaktir.  Eins og flestum er ljóst þá hafa viðræður fram til þessa ekki leitt til sameiginlegrar niðurstöðu um nýtt vinnutímafyrirkomulag, en í því ferli var frekar horft til þess að setja á vinnukerfi til skamms tíma eða fram á haust.

Fulltrúar lögreglumanna hafa setið 13 fundi þar sem mál þessi hafa verið skoðuð og ýmsu velt upp, en því miður fór fljótlega að myndast núningur á milli aðila er varð til þess að allt varð mun þyngra við að eiga.  Ýmislegt var sagt í þessu ferli sem betur hefði ekki verið sagt eða sett fram með öðrum hætti og í því sambandi er ég engin undantekning.

Til að tryggja sem besta aðkomu að þessum viðræðum skora ég á alla er málið varðar að koma á framfæri við stjórn LR athugasemdum er gætu létt störf okkar og orðið leiðbeinandi í þessu ferli.  Nú þegar hafa borist ábendingar um hluti sem betur mættu fara hvað stjórn LR varðar og nálgun okkar að þessu verkefni.   Telji einhver að stjórn LR fari gegn heildarhagsmun liðsins, verður sú rödd að heyrast.  Stjórn LR tekur við öllum ábendingum og hefur í því sambandi ekki verið horft til þess hvort viðkomandi sé félagsmaður LR eða ekki.

Í lokin vil að þakka þann mikla stuðning og samtöðu sem þið sýnduð í verki þann 28 apríl sl.

                                               
                                                                                                Arinbjörn Snorrason
                                                                                                Formaður LR

Síðast uppfært ( sunnudagur, 03 maí 2009 )
 
Fundargerð stjórnar 30. apríl 2009
Fundargerð stjórnar LR - Fundargerð stjórnar LR
Skrifað af Karl Jóhann   
fimmtudagur, 30 apríl 2009
 

Stjórnarfundur LR

Brautarholti 30 kl. 17:00

Mættir;            Arinbjörn Snorrason, Aðalbergur Sveinsson, Friðrik Brynjarsson, Björgvin Ingvason, Bylgja Hrönn Baldursdóttir, Ingólfur Már Ingólfsson og Karl Jóhann Sigurðsson.

Forföll;             Eiríkur Benedikt Ragnarsson

Mætti ekki;      Börkur Árnason

Farið var yfir efni sem vinnuhópur LR og LRH funduðu um í vikunni og varðar vaktafyrirkomulag lögreglumanna hjá LRH.  Samkvæmt tillögu frá LRH er stefnt að því að lögreglumönnum verði kynnt nýtt vaktafyrirkomulag 1.júní næstkomandi og að það yrði byggt á valfrjálsum vinnutíma.  Stjórn LR kemur ekki til með að samþykkja þetta samkomulag nema að fá að skoða önnur vaktkerfi sem ná fram sömu markmiðum og stefnt er að.

Síðast uppfært ( sunnudagur, 03 maí 2009 )
Lesa meira...
 
Meira...
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 46 - 54 af 224
Til fróðleiks
Lögreglumenn eiga rétt á bótum fyrir meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns.
 
Advertisement
Könnun
Hverjir eru tengdir
Við höfum 7 gesti tengda
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Header Pic
left unten right unten