|
|
|
Velkomin á heimasíđu Lögreglufélags Reykjavíkur |
|
|
|
|
Ályktun stjórnar LL og formanna svćđisdeilda |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
föstudagur, 14 ágúst 2009 |
|
Á fundi stjórnar LL og formanna svæðisdeilda landssambandsins, sem haldinn var fimmtudaginn 13. ágúst var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Landssamband lögreglumanna harmar þá stöðu sem komin er upp í lögreglunni í landinu.
Um langa hríð hefur sú staða verið uppi að fækkun hefur orðið í stéttinni vegna ónógra fjárveitinga. Breytingum hefur verið hrint í framkvæmd undir yfirskyni hagræðingar, þ.e. sparnaðar, í rekstri lögreglunnar. Slíkar breytingar hafa jafnan verið settar í þann búning, gagnvart almenningi, að verið sé að „efla, styrkja og bæta" þjónustu lögreglunnar. Slík markmið eru í sjálfu sér göfug en það hljóta þeir að sjá, sem eitthvað vita um rekstur almennt, að breytingar kosta aukið fjármagn, a.m.k. við upphaf slíkra breytinga.
Boðaður niðurskurður í lögreglunni í ár og á næsta ári, nái hann fram að ganga óbreyttur, mun augljóslega koma niður á þjónustustigi lögreglunnar um allt land. Lögreglan mun þurfa, enn frekar, að forgangsraða verkefnum sínum og ljóst að einhverjum þeim verkefnum, sem lögreglan er að sinna í dag mun ekki verða sinnt á næsta ári.
Landssamband lögreglumanna er mjög vel meðvitað um það ástand sem uppi er í þjóðfélaginu í dag, kannski betur en mörg önnur stéttarfélög, því það voru jú félagsmenn LL sem tóku við reiði fólksins í landinu framan við Alþingi Íslendinga í „búsáhaldabyltingunni" svokölluðu, í upphafi þessa árs. Þar rigndi yfir lögreglumenn grjóti, saur, þvagi, málningu, matvælum ýmis skonar o.fl. miður skemmtilegum „flugskeytum".
Félagsmenn LL eru í nákvæmlega sömu sporum og aðrir launþegar þessa lands, með sínar fjárhagslegu, sem og aðrar, skuldbindingar. Lögreglumenn velta því nú alvarlega fyrir sér, sbr. þær fregnir sem komið hafa af úrsögn félagsmanna LL, úr svokölluðum mannfjöldastjórnunarhópum lögreglu, hvoru megin línunnar þeir muni standa komi til annarrar „búsáhaldabyltingar" í haust eða vetur.
Snorri Magnússon
Formaður LL
Sjá einnig á vef LL: http://www.ll.bsrb.is/
|
|
Síđast uppfćrt ( föstudagur, 14 ágúst 2009 )
|
|
Opiđ bréf til Stefáns Eiríkssonar |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
fimmtudagur, 13 ágúst 2009 |
|
Hér að neðan gefur að líta opið bréf til Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra. Bréfið er frá Bylgju H. Baldursdóttur og fengu allir lögreglumenn hjá LRH það einnig sent í tölvupósti.
Sæll Stefán!
Ég sendi þér þennan tölvupóst og um leið öllum lögreglumönnum LRH þar sem að þetta er jú opið bréf til þín.
Ég hef starfað í lögreglunni í hátt á annan tug ára. Eru það launin sem hafa haldið mér í þessu starfi? Uhhh leyfðu mér að hugsa......nei , langt því frá. Það sem hefur haldið mér í þessu starfi er hrein og klár væntumþykja um vinnuna mína og mína vinnufélaga sem í raun og veru eru hin fjölskyldan mín. Vinnufélagar mínir hafa staðið saman þegar á bjátar og myndað eina sterka heild. Þú hefur sjálfur marg oft bent á það í tölvupóstum undanfarna mánuði.
Mig langaði bara að minna þig á það að við lögreglumenn erum venjulegt fólk, við höfum tilfinningar, eigum fjölskyldur og vini. Það eru takmörk fyrir því hversu mikið áreiti við þolum og getum lagt á okkar fólk. Áreiti utan frá er eitthvað sem ég geri mér fyllilega grein fyrir að fylgir mínu starfi. Áreiti innan frá er hins vegar óþolandi; óþægindi, óvissa, óánægja og þess háttar er eitthvað sem á ekki að þekkjast og virkar eins og krabbamein á lögregluna og krabbamein byrja jú innan frá í flestum tilvikum. Þar kemur til þinna kasta það er þitt hlutverk að stjórna stofnuninni þannig að fólk geti starfað þar í sátt og samlyndi, þú berð ábyrgð á því sem vel er gert og líka því sem er illa gert.
Lögreglan samanstendur af lögreglumönnum og á meðan þú hefur okkur þá ertu í góðum málum. Án lögreglumanna hefur þú enga lögreglu. Án okkar kemur þú til með að standa nakinn fyrir framan alþjóð líkt og keisarinn í sögunni um Nýju fötin keisarans. Ef það er það sem þú vilt.....þá bara gangi þér vel.
Ég læt hér í lokin fylgja nokkra hluta úr tölvupóstum sem þú hefur sent okkur og bendi á að með samstöðu hefur okkur tekist ýmislegt og verið sterk heild. En með þeim breytingum sem framundan eru er verið að búa til aðstæður sem gætu kallað á sundrungu í okkar röðum og það er hættulegt. Þú gætir misst okkur frá þér og ert því miður á góðri leið með það.
Bestu kveðjur
Bylgja Hrönn Baldursdóttir
15.01.2009 Þetta er enn ein rósin í hnappagat lögreglumanna hjá LRH. Þið hafið staðið ykkur frábærlega á liðnum árum og sérstaklega nú þegar á reynir. Það er einnig ánægjulegt að eftir því er tekið hversu góðir og öflugir lögreglumenn starfa hjá embættinu.
30.01.2009 Ágæta samstarfsfólk.
Það er ekkert lát á góðum kveðjum, stuðningi og þökkum til okkar fyrir vel unnin störf á liðnum dögum og vikum. Í morgun hafði samband við mig Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri og bað fyrir bestu kveðjur til lögreglumanna og annarra starfsmanna embættisins frá bankastjórn og öllum starfsmönnum Seðlabankans. Sagði hann að lipurð, liðlegheit og fagmennska lögreglunnar hefði vakið aðdáun allra sem í bankanum störfuðu og vildi bankastjórnin fyrir hönd bankans og starfsmanna hans koma á framfæri kærum kveðjum og þökkum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu af þessu tilefni. Þessari góðu kveðju var fylgt eftir með áþreifanlegum hætti sem starfsmenn munu fá að njóta í gegnum starfsmannafélag LRH.
Með góðri kveðju,
Stefán Eiríksson.
23.01.2009 Kveðjur og þakkir halda áfram að streyma til okkar, stuðningsyfirlýsingar úr öllum áttum og af öllu tagi. Fallegt bréf barst okkur frá starfsfólki KSÍ og Laugardalsvallar, konfekt frá öðrum og orkudrykkir þeim þriðja svo eitthvað sé nefnt.
19.03.2009 Í þessum dómi kemur skýrt fram hvernig frábær rannsóknarvinna og samvinna margra eininga innan LRH, einkum fíkniefnadeildar og upplýsinga- og áætlanadeildar, skilar þeirri niðurstöðu sem við blasir. Í dómnum má lesa og sjá hvernig hæfni og þekking starfsmanna embættisins á þessum sviðum ræður úrslitum í niðurstöðu héraðsdóms.
Það er ástæða til þess að halda þessu sérstaklega á lofti og vekja athygli á þeim frábæra árangri sem hæfni, reynsla og þekking starfsfólks embættisins skilar okkur, nú eru það starfsmenn fíkniefnadeildar og upplýsinga- og áætlanadeildar sem eru í sviðsljósinu.
Lögreglan nýtur mikils trausts eins og nýlega kom fram í þjóðarpúlsi Gallup. Grunnurinn á bak við það traust er sú frábæra vinna sem allir starfsmenn lögreglu skila á degi hverjum.
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 13 ágúst 2009 )
|
|
Niđurstađa atkvćđagreiđslu vegna kjarasamnings |
|
Kjaramál -
Fréttir af kjaramálum
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
fimmtudagur, 13 ágúst 2009 |
|
Atkvæðagreiðslu vegna kjarasamnings lauk í dag kl. 12.00.
747 höfðu atkvæðisrétt og nýttu 413 atkvæðisréttinn, eða 55,29 %, Niðurstaða atkvæðagreiðslunar var eftirfarandi:
Já sögðu 31 eða 7,51 %,
Nei sögðu 374 eða 90,56 %,
Auðir voru 8 eða 1,94 %.
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 13 ágúst 2009 )
|
|
Birkilundur - Vetrarleiga |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
ţriđjudagur, 11 ágúst 2009 |
|
Skráning fyrir vetrarleigu á sumarhúsi LR, Birkilundi er hafin.
Verð á vetrarleigu er eftirfarandi:
Helgarleiga (föstudagur til mánudags) kr. 10.000.
Þriðjudagur til fimmtudags kr. 2000 pr. dagur.
Í vetur verður sú breyting að einungis félagsmenn LR geta sótt um.
Fyrstur kemur - Fyrstur fær.
Nánari upplýsingar um skráningareglur er að finna á eftirfarandi tengli: http://www.logreglufelag.is/index.php?option=com_content&task=view&id=43&Itemid=68
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 11 ágúst 2009 )
|
|
Hver eru áhrif vaktavinnu á heilsu fólks og líđan? |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 10 ágúst 2009 |
|
Á vef Vinnueftirlitsins er að finna fróðlega grein um áhrif vaktavinnu á heilsu fólks og líðan:
Vaktavinna hefur áhrif á eðlislæga dægursveiflu hjá manninum. Manninum er eðlilegt eins og öðrum spendýrum að sofna á kvöldin, vakna á morgnana, borða á nokkurra klukkustunda fresti og menn eru misjafnlega upplagðir til vinnu eftir því hvenær sólarhrings er. Fæstum lætur vel að vaka á nóttunni en þó eru þeir til. Líkamshiti er lægstur snemma á morgnana en hæstur síðdegis. Þetta kann að hafa áhrif á vinnuhæfni og nákvæmni manna. Þannig hafa rannsóknir sýnt að vinnuslys tengjast oft þreytu og svefnleysi, að fólk á erfiðara með að einbeita sér ef eðlileg dægursveifla hefur verið trufluð.
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 11 ágúst 2009 )
|
|
Lesa meira...
|
|
Stjórnarfundur LR 10.08.2009 |
|
Fundargerđ stjórnar LR -
Fundargerđ stjórnar LR
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
ţriđjudagur, 11 ágúst 2009 |
|
Stjórnarfundur LR haldinn í Brautarholti 10.08.2009, kl 16:00
Mættir; Karl Jóhann Sigurðsson (KJS),Bylgja Hrönn Baldursdóttir (BHB), Ingólfur Már Ingólfsson (IMI), Eíríkur Benendikt Ragnarsson (EBR), FriðrikBrynjarsson (FB), Aðalbergur Sveinsson (ASv), Arinbjörn Snorrason (AS)
Mættu ekki; Börkur Árnason (BÁ) og Björgvin Ingvason (BI)
Fundarefni;
KJS sagði að í dag hafi verið skrifað undir bréf um ráðgefandi samráðsnefnd um valfrjálst vaktkerfi og starfsemi lögreglustöðva. LRH tilnefnir 3 ínefndina,LR 2 og LR og LL sjá um form og framkvæmd tilnefningar tveggja frá hverri svæðisstöð,þ.e. 1 frá vaktavinnufólk og annar frá dagvinnufólki. Tilnefningarnar þurfa að fara fram fyrir 21.ágúst.
Auglýst verður eftir 2 fulltrúum fyrir hönd lögreglumanna til að starfa í nefndinni. BHB sér um það.
AS kom á fundinn og var að koma úr útvarpshúsinu vegna viðtals í Kastljósi þar sem hann átti að mæta Stefáni Eiríkssyni. Í ljós kom þegar upp var staðið að Stefán vildi ekki mæta í viðtalið og voru því AS og Snorri Magnússon einir í viðtali.
AS sagðis hafa sagt á fundi í dag að það væri alveg vitað mál að menn væru ekki sáttir við þessar breytingar og sagði að enn sem fyrr hafi fulltrúar LRH skellt skollaeyrum við tillögum LR.
Fundi slitið kl. 18:15
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 11 ágúst 2009 )
|
|
Viđtal viđ formenn LL og LR |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 10 ágúst 2009 |
|
Í kvöld var viðtal við Snorra Magnússon, formann LL og Arinbjörn Snorrason, formann LR í Kastljósinu á RÚV. Hægt er að sjá viðtalið á eftirfarandi tengli: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4466690/2009/08/10/1/
|
|
Ályktun félagsfundar LR 30. júlí. |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifađ af Karl Jóhann
|
|
fimmtudagur, 30 júlí 2009 |
Almennur félagsfundur LR haldinn þann 30.07.2009 samþykkir svohljóðandi ályktun;
Dómsmálaráðherra er kunn sú almenna óánægja sem er meðal lögreglumanna með fyrirhugaðar breytingar á vaktakerfi og starfsemi LRH.
Fundurinn skorar á dómsmálaráðherra að höggva á þann hnút sem kominn er fram vegna fyrirhugaðra vaktkerfisbreytinga og fimm stöðva kerfi hjá LRH þar til ákvörðun liggur fyrir um frekari skipulagsbreytingar sem fyrirhugaðar eru á lögreglunni á landsvísu.
Það er eindreginn vilji vaktavinnumanna hjá LRH að núverandi vaktafyrirkomulag, þ.e. 5 vaktakerfi haldi áfram með óbreyttu sniði.
Félagsmenn árétta ályktun sína sem samþykkt var á almennum félagsfundi þann 28. apríl síðastliðinn.
Tillaga til fundar þann 28.apríl er að núverandi vaktafyrirkomulag haldist óbreytt. Lögreglumenn krefjast þess að kosið verði um þær breytingar á vaktkerfi sem unnið verði eftir.
Samþykkt af fundarmönnum. Fundinn sóttu um 100 manns.
Ályktunin var send dómsmálaráðherra og fjölmiðlum
|
|
Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 30 júlí 2009 )
|
| | << Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Síđasta >>
| | Niđurstöđur 37 - 45 af 224 |
|
|
Til fróđleiks |
|
Lögreglufélagið hefur sumarhús á leigu fyrir félagsmenn. Sumarhúsið heitir Birkilundur og er í Reykholti í Biskupstungum, um 1 klst akstur frá Reykjavík. |
|
|
Hverjir eru tengdir |
|
Viđ höfum 7 gesti tengda |
|