|
|
|
Velkomin á heimasíðu Lögreglufélags Reykjavíkur |
|
|
|
|
Lögreglan nýtur afgerandi trausts |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
þriðjudagur, 06 október 2009 |
|
Eftirfarandi frétt er tekin af visi.is:
Lögreglan nýtur afgerandi trausts í nýrri skoðanakönnun MMR og segjast tæplega 81 prósent aðspurðra bera mikið traust til lögreglunnar. Traust til Háskóla Íslands mælist tæplega 70 prósent. Bankakerfið situr sem fyrr á botninum hvað traust almennings áhrærir, en tæp 3 prósent segjast bera mikið traust til þess.
Könnunin fór fram dagana 9. til 14. september. Í desember 2008 sögðu 75,7 prósent bera mikið traust til lögreglu og 76,9 prósent í maí síðastliðnum. Samkvæmt könnun MMR bera nú 80,9 prósent landsmanna mikið traust til lögreglumanna.
Sjá nánar á: http://www.visir.is/article/20091006/FRETTIR01/733445018
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 28 september 2009 |
|
Eftirfarandi er tekið af mbl.is
Dómsmálaráðherra hefur fallist á tillögur starfshóps þess efnis að sameina lögregluumdæmi svo þau verði sex að tölu frá næstu áramótum. Jafnframt hefur ráðherra kynnt sýslumönnum hugmynd um fækkun umdæma úr 24 í sjö, en útibú verða þó víðsvegar um landið. Samþykki Alþingi tillögur ráðherra er gert ráð fyrir að breytingarnar taki gildi um næstu áramót.
Með stækkuðum umdæmum eiga embættin að vera betur í stakk búin til að takast á við fyrirhugaðan niðurskurð. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er það m.a. til umræðu að skilja þætti frá ríkislögreglustjóra í ljósi sterkari eininga lögreglunnar. Meðal annars er horft til sérsveitarinnar.
Sjá einnig á eftirfarandi tengli: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/09/26/stortaekar_breytingar_a_umdaemum/
|
|
Úrslit Heiðmerkurhlaupsins 2009 |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
sunnudagur, 27 september 2009 |
|
Hlaupið fór fram laugardaginn 26. sept. kl.13.00 í leiðindar veðri. Það var hvasst og á tímabili var haglél. Hlaupið var hins vegar tímamótahlaup, vegna þess að kvennmaður vann hlaupið, en það hefur aldrei gerst áður.
ÚRSLIT:
Konur.
•1. Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir 52.55,06
Karlar.
•1. Sigurður Betúel Andrésson 53.12,15
•2. Pétur Már Sveinsson 59.24,22
•3. Þorvaldur Kristjánsson 59.26,35.
|
|
Síðast uppfært ( sunnudagur, 27 september 2009 )
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
sunnudagur, 20 september 2009 |
|
Heiðmerkurhlaup ÍFL 2009 verður haldið laugardaginn 26. sept kl. 13.00.
Hlaupið hefst við gamla hliðið rétt sunnan afleggjarans að Jaðri eins og venjulega og lýkur við Maríuhella.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sigurpálsson(
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
)
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
miðvikudagur, 02 september 2009 |
|
Laugardaginn 5 september næstkomandi stendur til að synda "hetjusund", áheitasund til styrktar Sveini Bjarka Sigurðssyni félaga okkar innan lögreglunnar sem nýlega greindist með krabbamein. Markmiðið með sundinu er að sýna honum stuðning þar sem nokkrir starfsbræður munu takast á við lengra og erfiðara sund en þeir hafa nokkurn tímann synt til þessa. "Við munum allir sigra" verður slagorð dagsins.
Enginn okkar getur státað sig af einhverjum sérstökum sundafrekum í sundlaug þó svo við höfum allir buslað í sjó. Ætlunin verður þó að synda hið ,,orginal'' Viðeyjarsund sem gerir um 4,5 km. Synt verður frá Viðeyjarbryggju inn í Reykjavíkurhöfn. Þar sem lögreglumenn, félagar og aðrir góðir gestir munu taka á móti fólki. Við gerum ráð fyrir að leggja af stað frá Viðeyjarbryggju um kl. 10:00 og koma helst ekki síðar en kl. 12:00 að Miðbakka við Reykjavíkurhöfn. Fylgdarbátur mun fylgja sundmönnum.
Prógram við Reykjavíkurhöfn:
Stefnt verður að því að vera með einhverskonar prógram við Reykjavíkurhöfn (Miðbakka) þar sem til greina kemur að vera með grill, sýna tæki lögreglunnar, svo sem bifhjól, lögregluhundinn Dýrmund Dýra og eitthvað fleira.
Þeir sem vilja leggja honum og fjölskyldu hans lið geta lagt inn á söfnunarreikning 0515-14-404200 kt. 040974-3939.
fyrir hönd sjósundfélag lögreglunnar
Arnþór Davíðsson
ritari, sjósundfélagi lögreglunnar
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 24 ágúst 2009 |
|
Úrsögn úr aukavinnu
Rétt er að benda þeim lögreglumönnum í almennudeild sem vilja segja sig úr aukavinnu að fresturinn skv. aukavinnureglum er til 1. september.
Þeir sem ætla að segja sig úr aukavinnu er bent á að senda viðhlítandi tilkynningu í tövupósti til Geir Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns og viðkomandi stöðvarstjóra.
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 27 ágúst 2009 )
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 17 ágúst 2009 |
|
Lögreglufélag Reykjavíkur og LL hafa marg oft bent á þá manneklu sem hrjáir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og þá hættu sem þetta skapar lögreglumönnum og borgurum. Þegar sá sem þetta skrifar var að byrja í lögreglunni í Reykjavík var næturvakt í miðri viku hjá almennudeild nær undantekningarlaust mönnuð á eftirfarandi hátt:
Vesturbæjarbíll
Stöðvarbíll
Austurbæjarbíll
Austurbæjarmaría
Breiðholtsbíll
Mosfellbæjarbíll
Útivarðstjóri
Sérsveit
SRD (slysarannsóknardeild)
Það skal ítrekað að svona voru hverfin mönnuð á næturvakt í miðri viku. Um helgar og þegar hátíðir eins og 17. júní o.þ.h. bar upp var að sjálfsögðu miklumeiri mannskapur á vakt. Yfirleitt voru allir bílarnir mannaðir tveimur mönnum nema stöðvarbíll. Á honum voru yfirleitt þrír. Það þýðir að venjulega voru a.m.k. 19 manns sem mönnuðu hverfin í Reykjavík og varðstjórar inni voru þrír og þrír lögreglumenn til viðbótar mönnuðu fjarskipti, samtals voru því a.m.k. 25 lögreglumenn að störfum hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Þetta var fyrir um 15 árum síðan og þá var Grafarholtið, Norðlingaholtið, Staðarhverfið í Grafavogi, Höfðahverfið í Mofsfellsbæ og Vallarhverfið í Hafnarfirði ekki til. Við þetta má bæta að lögreglan í Kópavogi var með a.m.k. 1 og stundum 2 bíla í umferð og lögreglan í Hafnarfirði var með a.m.k. 2 bíla í umferð. Bæði í Kópavogi og Hafnarfirði var einn varðstjóri inni. Það þíðir því að á núverandi varðsvæði LRH voru a.m.k. 25 manns útivinnandi.
Núna er hverfin oft og iðulega mönnuð eftirfarandi:
Stöðvarbíll
Austurbæjarbíll
Útivarðstjóri norður
Kópavogsbíll
Útivarðstjóri suður
Hafnarfjarðarbíll
Stöðvarbíll sér um vesturbæinn og er mannaður tveim. Austurbæjarbíll sér um austurborgina frá Snorrabraut og er einnig með Grafarvog, Árbæ, Norðlingaholt, Grafarholtið, Mosfellsbæ og Kjalarnes. Útivarðstjóri norður aðstoðar austurbæjarbíl en hann er oft einn. Kópavogsbíll sér um allan Kópavoginn og Breiðholtið. Útivarðstjóri suður aðstoðar Kópavog og Hafnarfjörð en er einnig oft einn. Reyndar kemur það allt of oft fyrir að einungis er einn útivarðstjóri. Það þíðir að samtals eru yfirileit 12 manns sem manna varðsvæði LRH.
Þessu til viðbótar gerir sérsveitin út a.m.k. einn bíl á suðvestur horninu.
Það er því ljóst að það er sama í hvaða tölfræðileikfimi menn fara, lögreglumönnum á götunni hefur fækkað um a.m.k 13 á meðan íbúum hefur fjölgað um a.m.k. 50.000.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 25 ágúst 2009 )
|
|
Óöryggi bitnar á störfum okkar |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
laugardagur, 22 ágúst 2009 |
|
Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Erlu Dögg Guðmundsdóttur og Gísla Jökul Gíslason um lögreglustarfið og óánægju lögreglumanna hjá LRH með fyrirhugaðar vaktkerfisbreytingar og svokallaða 5 stöðva "hugmyndafræði".
Jökull: Það er tvennt sem mun hafa mikil áhrif á hvað gerist næst. Annars vegar er
það vaktafyrirkomulagið, en enginn veit hvaða vaktir hann fær á næstunni. Kerfið er
valfrjálst og menn velja sér vaktir, en enginn veit enn hvaða vaktir hann fær af þeim
sem hann valdi sér. Þetta virðist mikið lotterí, menn geti valið x og fengið b. Verði
niðurstaðan óhagkvæm og endalaust verið að riðla því sem menn báðu um gæti það
verið kveikur í púðurtunnu og haft áhrif á þá sem eru hvað reiðastir.
Hitt sem gæti kveikt í mönnum, er ef lögreglumenn slasast mjög alvarlega í starfi.
Menn hafa lengi varað við því. Ef ég á að vera raunsær þá er það bara tímaspursmál
hvenær lögreglumaður verður drepinn í starfi.
|
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 22 ágúst 2009 )
|
| | << Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
| | Niðurstöður 28 - 36 af 224 |
|
|
Til fróðleiks |
|
Lögreglumenn eiga rétt á bótum fyrir meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns. |
|
|
Hverjir eru tengdir |
|
Við höfum 8 gesti tengda |
|