|
|
|
Velkomin á heimasíðu Lögreglufélags Reykjavíkur |
|
|
|
|
Ítrekun - fulltrúar í stjórn LL |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 15 febrúar 2010 |
|
Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur ítrekar auglýsingu frá 19. janúar þar sem auglýst var eftir fulltrúm LR í stjórn LL.
Áhugasamir hafi samband við Karl Jóhann á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
fyrir 20. febrúar.
|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 15 febrúar 2010 )
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
fimmtudagur, 04 febrúar 2010 |
|
Þann 3. febrúar áttu fulltrúar stjórnar Lögreglufélags Reykjavíkur (LR) fund með fulltúum yfirstjórnar LRH. Stjórn LR óskaði eftir fundi með yfirstjórn LRH. Fundurinn hófst kl. 14:00 og fór fram í fundarsal á 4. hæð á Hverfisgötu. Fyrir hönd LRH sátu fundinn Kristján Ólafur Guðnason, Sigríður Hrefna Jónsdóttir og Geir Jón Þórisson en fyrir hönd LR voru Arinbjörn Snorrason, Karl Jóhann Sigurðsson, Bylgja Hrönn Baldursdóttir og Aðalbergur Sveinsson. Þau erindi sem fulltrúar LR báru upp á fundinum voru eftirfarandi: - Mönnun/undirmönnun og skipulag aukavinnu. - Viðhorfskönnun - Ráðningar, hvernig var staðið að þeim - Skipulag sumarleyfis - Erindi frá Vinnueftirlitinu - Fjarvistir og álag - Árshátið LRH - Sýnileiki á punktastöðu í vinnuskráningarkerfinu - Starfslýsingar eftir skipulagsbreytingar - Samráðsfundur Engin erindi voru frá yfirstjórn LRH. Fundargerð mun birtast síðar þar sem gert verður frekar grein fyrir afgreiðslu þessara mála. |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
þriðjudagur, 19 janúar 2010 |
|
Í samræmi við 26. grein laga LL skal hver svæðisdeild auglýsa fyrir 20. janúar eftir þeim sem vilja gefa kost á sér í stjórn LL fyrir viðkomandi svæðisdeild. Skv. 26. grein laga LL skulu 7 menn frá höfuðborgarsvæðinu vera í stjórn LL. Með höfuðborgarsvæðinu er átt við alla lögreglumenn hjá LRH, RLS, LSR og hjá sérstökum saksóknara sem eru fullgildir félagar í LL skv. 3. gr. laga LL. Lögreglufélag Reykjavíkur auglýsir því hér með eftir þeim sem vilja gefa kost á sér í stjórn LL.
Áhugasamir hafi samband við Karl Jóhann á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
fimmtudagur, 31 desember 2009 |
|
DV hefur valið lögreglumenn á Íslandi sem hetjur ársins á Íslandi 2009. Lögreglufélag Reykjavíkur er sannarlega sammála DV í þetta sinn og tekur undir eftirfarandi orð Reynis Trausta, ritstjóra DV: "Lögreglumennirnir voru grýttir og það var hrækt á þá. Þrátt fyrir það héldu þeir stillingu sinni að langmestu leyti. Mörgum er minnisstætt þegar fólk úr hópi mótmælenda sló skjaldborg um lögreglumenn framan við Stjórnarráðið. Við þær aðstæður sem mörkuðust af stjórnlausri reiði í garð stjórnvalda hefði aðeins þurft einn neista til að kveikja bál. Lögreglumenn á vettvangi slösuðust við störf sín. Það segir sína sögu um stillingu þeirra að mótmælendur slösuðust ekki. Niðurstaðan er sú að lögreglan stóðst þolraunina og tryggði með því að róstur urðu ekki meiri en raun ber vitni. Það má ekki gleymast að innan lögreglunnar er venjulegt fólk sem deilir kjörum með almenningi. Lögreglumenn eru rétt eins og annað fólk með meðaltekjur að borga af lánum sínum og berjast við að eiga til hnífs og skeiðar. Að þessu sinni telur DV rétt að útnefna lögreglumenn Íslands sem hetjur ársins. Þótt viðurkenningin sé merkt þeim tveimur sem björguðu mannslífi í bakaríi nær hún til allra þeirra lögreglumanna sem gengu fram af yfirvegun á einhverjum mestu örlagatímum í sögu íslenska lýðveldisins. Með hófstilltri framgöngu fyrirbyggði lögreglan slys sem annars hefðu getað orðið." Sjá nánar á eftirfarandi tengli: http://www.dv.is/leidari/2009/12/30/hetjur-islands/ |
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 31 desember 2009 )
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 21 desember 2009 |
|
Hið árlega jólaball Lögreglufélags Reykjavíkur verður haldið þann 30. desember 2009 kl. 15:30 í matsalnum á 4. hæð -Hverfisgötu.
Jólasveinar mæta og dansa með krökkunum í kringum jólatréð, auk þess sem allir fá smá glaðning.
Að lokum er svo ætlunin að allir fái sér smá hressingu og eru öll framlög á hlaðborðið vel þegin. Aðgangur ókeypis.
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
föstudagur, 11 desember 2009 |
|
Lögreglufélag Reykjavíkur boðar til fundar mánudaginn 14. desember kl. 15:30. Fundurinn verður haldinn sal BSRB að Grettisgötu 89.
Fundarefnið eru fyrirhugaðar breytingar á skipan lögreglu. Á fundinn koma Snorri Magnússon, formaður L.L. og fullrúar Dóms- og mannréttindaráðuneytisins og greina frá vinnu við skipulagsbreytingarnar.
|
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
mánudagur, 16 nóvember 2009 |
|
Lögreglukórinn 75 ára - Tónleikar
Lögreglukór Reykjavíkur minnist þess að á árinu eru 75 ár frá stofnun hans.
Af því tilefni verður efnt til tónleika n.k. laugardag, 21. nóvember 2009, kl. 16.00 í Laugarneskirkju.
Efnisskráin verður fjölbreytt, hefðbundin karlakóralög en meira af léttri tónlist við undirleik færustu hljóðfæraleikara.
Miðasala verður við innganginn, aðgangseyrir er kr. 1.500.-
Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson.
Hljóðfæraleikarar:
Gunnar Gunnarsson píanó
Tómas R. Einarsson bassi
Ómar Guðjónsson gítar
Scott McLemore slagverk
|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 16 nóvember 2009 )
|
|
Ályktun stjórnar lögreglufélags Vestfjarða |
|
Tilkynningar -
Tilkynningar
|
|
Skrifað af Karl Jóhann
|
|
föstudagur, 30 október 2009 |
|
Aðalfundur Lögreglufélags Vestfjarða 2009, var haldinn í Einarshúsi, í Bolungarvík miðvikudaginn 28. Október. Fundurinn sendir frá sér meðfylgjandi ályktun.
ÁLYKTUN:
Aðalfundur lögreglufélags Vestfjarða, haldinn í Einarshúsinu í Bolungarvík miðvikudaginn 28. október 2009, hvetur dómsmálaráðherra að hætta við fyrirhugaðan niðurskurð hjá lögreglu enda komi hann niður á öryggi lögreglumanna og þjónustu við íbúa landsins. Fundurinn kallar eftir því að ekki verði ráðist í neinar breytingar nema að vel yfirveguðu og ígrunduðu máli sem og í samráði við fulltrúa starfandi lögreglumanna í landinu.
Fundurinn varar við því að í sparnaðarskyni verði gengið gegn ákvæðum reglugerðar um starfsstig innan lögreglu og verkefni sem sannarlega eigi að vera á hendi yfirmanna verði færð yfir á óbreytta lögreglumenn.
Fundurinn hvetur forystumenn sveitarfélaga til að standa vörð um núverandi fjölda starfsstöðva og lögreglumanna í landinu í fyrirhuguðum breytingum á lögregluembættum og standi þannig vörð um öryggi og hagsmuni íbúa sinna sveitarfélaga.
Fundurinn harmar þá ákvörðun sem Ríkislögreglustjóri hefur tekið varðandi rafbyssur sem valdbeitingartæki, þ.e. að eingöngu að heimila sérsveitinni notkun á því. Fundurinn óskar eftir útskýringum á því hvers vegna það er lagt til að þrautþjálfaðir og vel vopnum búnir lögreglumenn sérsveitar RLS verði búnir rafbyssu valdbeitingartækjum á meðan illa tækjum búnir lögreglumenn á landsbyggðinni, sem starfa einir, fjarri allri aðstoð, og þurfa oft á tímum að leysa samskonar verkefni og sérsveit RLS verði án þessara tækja.
Að lokum skorar fundurinn á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að vera Íslands í Shengen verði endurskoðuð. Að farin verði svo kölluð ,,breska leið“ að halda uppi vegabréfaeftirliti á landamærum landsins. Fundurinn bendir á í því sambandi að bæði Bretland og Írland eru utan Shengen-svæðis, en þessi lönd eru eyjur í Evrópu eins og Ísland, Þ.e. að þeir eru ekki með í 96. gr. samningsins og eru áfram með landamæraeftirlit en stefna að því að vera í öllu öðru samstarfi lögreglu í Evrópu, þ.e. upplýsingaöflun og upplýsingarsamvinnu. |
|
Síðast uppfært ( föstudagur, 30 október 2009 )
|
| | << Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
| | Niðurstöður 19 - 27 af 224 |
|
|
Til fróðleiks |
|
Fyrir skemmstu lauk framkvæmdum á 2. og 3. hæð húsnæðis LR í Brautarholti. Báðar hæðir eru komnar í leigu. Beðið er eftir að leigutekjur skili sér inn og á þá að fara í framkvæmdir á félagasaðstöðu á fyrstu hæð. |
|
|
Hverjir eru tengdir |
|
Við höfum 7 gesti tengda |
|