Header Pic Header Pic
Header Pic
 
Header Pic
Header Pic  PfeilForsíða
Header Pic
Header Pic

Boðun á aukavaktir
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
mánudagur, 30 ágúst 2010

Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur vill árétta það sem kom fram á fundi sem stjórn LR átti með fulltrúum yfirstjórnar LRH þann 3. febrúar sl. Þar kom fram að þegar lögreglumenn eru búnir að fá frí og fá það staðfest ætti ekki að breyta því eða hringja í þá og boða á aukavakt.

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn ætlaði að koma þessum fyrirmælum til þeirra undirmanna sinna sem sjá um skipulagninu aukavinnu.  

Stjórn lögreglufélags Reykjavíkur hefur borist nokkur óformleg erindi þess efnis að ekki sé farið eftur þessu. Þeir sem telja að á sér sé brotið eru eindregið hvattir til að hafa samband við stjórnarmenn LR sem mun tilkynna Geir Jóni Þórissyni, yfirlögregluþjóni um málið og getur hann þá áréttað fyrri fyrirmæli sín við þá sem við á.

Síðast uppfært ( mánudagur, 30 ágúst 2010 )
 
Aðalfundur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
þriðjudagur, 24 ágúst 2010

Aðalfundur LR, haldinn 18.maí 2010 kl. 17:00 að Brautarholti 30

 

Dagskrá fundar:

1.   Fundarsetning.
2.   Kosningfundarstjóra.
3.   Kosning fundarritara.
4.   Skýrsla stjórnar.
5.   Reikningar félagsins.
6.   Reikningar Lögreglusjóðs og Sjúkrasjóðs
7.   Kosning fulltrúa og jafn margra varafulltrúa í eftirtaldar stjórnir og nefndir:

a) 3 menn í stjórn Lögreglusjóðs.

b) 3 menn í minningarsjóð ErlingsPálssonar.

8.   Kosning kjörstjórnar sbr. 8 gr. laganna.
9.   Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara.
10. Lagabreytingar.
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.

 

1.   AS setti fundinn

2.   Einar Guðmundur Guðjónsson var kosinn fundarstjóri

3.   Bylgja Hrönn Baldursdóttir var kosin fundarritari

4.   AS fór yfir skýrslu stjórnar og skýrði frá vinnu síðast árs. Hann fór einnig yfir reikninga úr 5.og 6. lið og útskýrði þá.

5.   Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir af fundarmönnum

6.   Reikningur Lögreglusjóðs og sjúkrasjóðs lagðir fram og samþykktir af fundarmönnum.

7.   Þá var komið að kosningu fulltrúa og jafnmargra varafulltrúa í eftirtaldar stjórnir og nefndir:

a)   3 menn í stjórn Lögreglusjóðs og voru eftirtaldir valdir sem fulltrúar: Óskar Sigurpálsson, Þorleifur Njáll Ingólfsson og Bylgja HrönnBaldursdóttir.  Varamenn; Eiríkur Óskar Jónsson og Guðmundur Sigmundsson.

b)   3 menn í stjórn Minningarsjóðs um Erling Pálsson og urðu eftirtaldir fyrir valinu í stjórnina; Þorvaldur Sigmarsson, Jóhann Karl Þórisson og Hinrik Pálsson. Varamenn voru kjörnir; Dóra Björk Reynisdóttir, Bylgja Hrönn Baldursdóttir og Þorbjörn Sigurðsson.

8.   Kosið var í kjörstjórn samkvæmt 8.gr.laganna og voru eftirtaldir valdi rsem aðalmenn:

Atli Már, Eiríkur Óskar, Hlynur Steinn, Sigurður Betúel og Þorvaldur Sigmarsson. Varamenn voru kjörnir þeir; Guðmundur Ingi Rúnarsson, Guðbrandur Hansson og Jens Gunnarsson

9.   Tveir skoðunarmenn voru kjörnir og hlutu Guðmundur Ingi Rúnarsson og Magnús Jónasson áframhaldandi kosningu.

10. Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum

11. Önnur mál. Rætt um vaktkerfismál og kom sú hugmynd úr sal að lögreglumenn myndu vinna eins vaktarúllu eins og fangaverðir LRH vinna og settur yrði inn aukadagur til að fylla upp í vinnuskyldu. Aðgerðar og skipulagsdeild gæti séð um að skipuleggja svo starfsdag 1.sinni í mánuði.

Rætt um vinnuhóp vegna komandi kosninga og að sá hópur myndi vinna aðhugsanlegum breytingum á núverandi kerfi eða búi til nýtt kerfi. Mikið var rættum þau brot sem orðið hafa á samkomulaginu síðan það tók gildi og óttuðust mennað sumarið yrði ekki gott hvað varðar uppfyllingu á samkomulaginu.

12. Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 18:30. 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 24 ágúst 2010 )
 
"Hagræðing á sannleikanum"
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
laugardagur, 21 ágúst 2010

Hér að neðan gefur að líta blogg sem Jónas Hallson, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum í Reykjavík og hjá LRH hefur ritað. Jónas var um tíma stöðvarstjóri og ætti því að vita hvað hann er að segja.

Blogg Jónasar Hallsonar 21.08.2010: 

"Það hefur viðgengist í allmörg ár að hagræða skráningu á málaflokkum lögreglunnar í Reykjavík, (eins og hún hét), nú Höfuðborgarsvæðisins, svo þeir liti betur út í ársskýrslum síðustu ára. Sem dæmi ef innbrot er framið í húsnæði, þá er það skráð sem húsbrot ef engu er stolið, en andlagið að baki verknaðinum er það sama og um innbrot sé að ræða. Þannig fækkaði skráðum innbrotum, þó svo að verkefnum fækkaði ekki. Þannig hefur verið hagrætt með fleiri málaflokka. Þessi verklagsregla var tekin upp áður en Stefán Eiríksson kom til sögunnar. Það er ekki hægt að fækka verkefnum lögreglu með breytingu á skráningu brotaflokka. Það er einungis verið að hagræða sannleikanum. Það er eins með grenndareftirlit í götum sem engin afbrot hafa verið framin í. Þar er ekki hægt að hafa neina mælistiku á fækkun brota."

 

Sjá einnig á eftirfarandi tengli: http://jjh.blog.is/blog/jjh/entry/1087210/

Síðast uppfært ( laugardagur, 21 ágúst 2010 )
 
"lögreglumennirnir einir sem komi nálægt skráningunum"
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
laugardagur, 21 ágúst 2010

Hér að neðan gefur að líta frétt á mbl.is þar sem formaður L.L. gagnrýnir tölfræðileikfimi yfirstjórnar LRH. Það er fróðlegt fyrir lögreglumenn að lesa ummæli lögreglustjóra og rétt fyrir lögreglumenn að hafa þau í huga næst þegar skráningu á málum þeirra er breytt. Það væri kannski ekki úr vegi að kvarta beint til lögreglustjóra svo hann viti hvað undirmenn hans eru að aðhafast.

Þess ber að geta að stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur tekur undir orð formanns L.L. hvað varðar tölfræðirleikfimi yfirstjórnar LRH við skráningu mála. 

 Frétt mbl.is:  http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/08/20/segir_skyrslum_logreglu_breytt/  

 

 

Síðast uppfært ( laugardagur, 21 ágúst 2010 )
 
Vinna lögreglumanna til sóma
Dómar - Héraðsdómar
Skrifað af Karl Jóhann   
föstudagur, 09 júlí 2010

Í dag féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem segja má að sótt hafi verið að störfum lögreglumanna sem voru á vettvangi. Í stuttu máli má segja að Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ekkert út á störf lögreglumanna á vettvangi að setja og stóðu þeir sig með sóma. Þetta er fróðlegur dómur þar sem málið fékk nokkra umfjöllun í fjölmiðlum þar sem blaðamaður fjallaði nær eingöngu um hlið hins kærða og virtist ekki hafa kynnt sér málið til hlítar t.d. skuldbindingar Íslands við sendiráð erlenda ríkja hér á landi. 

 Hér gefur að líta umfjöllun umfjöllun Fréttablaðsins á sínum tíma og augljóst að fréttamaður spyr hinn kærða engra áleitinna spurninga:  http://www.visir.is/article/2010109910842 

Það er fróðlegt að sjá hvort þetta mál fái einhverja umfjöllum hjá Fréttablaðinu yfirleitt fyrst þetta var niðurstaðan?  

Hér má sjá dóm Héraðsdóms Reykjavíkur:  http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S201000346&Domur=2&type=1&Serial=1&Words= 

Hér gefur að líta umfjöllum mbl.is um dómsniðurstöðuna:  http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/07/09/neitadi_ad_faera_sig_yfir_gotu/ 

Síðast uppfært ( laugardagur, 10 júlí 2010 )
 
Aðalfundur
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
miðvikudagur, 05 maí 2010

Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur boðar til aðalfundar þriðjudaginn 18. maí, kl. 17 í félagsheimili LR að Brautarholti 31, jarðhæð.

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
1.   Fundarsetning.
2.   Kosning fundarstjóra.
3.   Kosning fundarritara.
4.   Skýrsla stjórnar.
5.   Reikningar félagsins.
6.   Reikningar Lögreglusjóðs og Sjúkrasjóðs
7.   Kosning fulltrúa og jafn margra varafulltrúa í eftirtaldar stjórnir og nefndir:
a) 3 menn í stjórn Lögreglusjóðs.
b) 3 menn í minningarsjóð Erlings Pálssonar.
8.   Kosning kjörstjórnar sbr. 8 gr. laganna.
9.   Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara.
10. Lagabreytingar.
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 05 maí 2010 )
 
Fulltrúar á 30. þing LL
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
miðvikudagur, 07 apríl 2010

Lögreglufélag Reykjavíkur auglýsir eftir þingfulltrúum fyrir hönd svæðisdeildarinnar á 30. þing Landssamband Lögreglumanna sem verður haldið 27. til 29. apríl að Geysi í Haukadal. Lögreglufélag Reykjavíkur á rétt á 15 fulltrúum á þingið að þessu sinni. Allir lögreglumenn hjá RLS, LRH, LSR og sérstökum saksóknara eru hæfir sem fulltrúar fyrir hönd svæðisdeildarinnar.

Auglýst er eftir 15 þingfulltrúm og 2 til vara.

Áhugasamir hafi samband við Karl Jóhann fyrir 13. apríl á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Sjá nánar um þing LL í V. kafla lögum félagsins á eftirfarandi tengli: http://www.ll.bsrb.is/umll/logll

 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 07 apríl 2010 )
 
Birkilundur - Sumarleiga
Tilkynningar - Tilkynningar
Skrifað af Karl Jóhann   
sunnudagur, 28 mars 2010

 

Birkilundur

 

SUMARLEIGAN ER AÐ HEFJAST

UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ LIGGJA FRAMMI ÍUMFERÐARDEILD Á LÖGREGLUSTÖÐINNI HVERFISGÖTU 113-115

 

FYRSTA VIKA TIL ÚTLEIGU ER VIKAN 21-28 MAÍ.UMSÓKNUM SKAL SKILA Í ÞAR TIL GERÐAN KASSA Í UMFERÐARDEILD,

EIGI SÍÐAR EN MÁNUDAGINN 26.apríl

  

EF FLEIRI EN EIN UMSÓKN BERST UM SÖMU VIKUNA VERÐUR DREGIÐ ÚR UMSÓKNUM.

FÉLAGSMENN LR HAFA FORGANG VIÐ ÚTHLUTUN.

(Þeir sem fengu úthlutun sumarleigu í fyrra sitja hjá við úrdrátt nemaað enginn önnur umsókn berist um vikuna)

 

VERÐ Á VIKULEIGU ER 15.000kr-

 frá 21. maí til 3 sept.  verðurbústaðurinn einungis leigður út viku í senn

 

Nánar um Birkilund á:  www.logreglufelag.is/index.php?option=com_content&task=view&id=43&Itemid=68

 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 04 maí 2010 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 9 af 224
Til fróðleiks
Lögreglumenn eiga rétt á bótum fyrir meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns.
 
Advertisement
Könnun
Hverjir eru tengdir
Við höfum 7 gesti tengda
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Header Pic
left unten right unten