|
Aðalfundur LR, haldinn 18.maí 2010 kl. 17:00 að Brautarholti 30 Dagskrá fundar: 1. Fundarsetning. 2. Kosningfundarstjóra. 3. Kosning fundarritara. 4. Skýrsla stjórnar. 5. Reikningar félagsins. 6. Reikningar Lögreglusjóðs og Sjúkrasjóðs 7. Kosning fulltrúa og jafn margra varafulltrúa í eftirtaldar stjórnir og nefndir: a) 3 menn í stjórn Lögreglusjóðs.
b) 3 menn í minningarsjóð ErlingsPálssonar.
8. Kosning kjörstjórnar sbr. 8 gr. laganna. 9. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara. 10. Lagabreytingar. 11. Önnur mál. 12. Fundarslit. 1. AS setti fundinn 2. Einar Guðmundur Guðjónsson var kosinn fundarstjóri 3. Bylgja Hrönn Baldursdóttir var kosin fundarritari 4. AS fór yfir skýrslu stjórnar og skýrði frá vinnu síðast árs. Hann fór einnig yfir reikninga úr 5.og 6. lið og útskýrði þá. 5. Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir af fundarmönnum 6. Reikningur Lögreglusjóðs og sjúkrasjóðs lagðir fram og samþykktir af fundarmönnum. 7. Þá var komið að kosningu fulltrúa og jafnmargra varafulltrúa í eftirtaldar stjórnir og nefndir: a) 3 menn í stjórn Lögreglusjóðs og voru eftirtaldir valdir sem fulltrúar: Óskar Sigurpálsson, Þorleifur Njáll Ingólfsson og Bylgja HrönnBaldursdóttir. Varamenn; Eiríkur Óskar Jónsson og Guðmundur Sigmundsson. b) 3 menn í stjórn Minningarsjóðs um Erling Pálsson og urðu eftirtaldir fyrir valinu í stjórnina; Þorvaldur Sigmarsson, Jóhann Karl Þórisson og Hinrik Pálsson. Varamenn voru kjörnir; Dóra Björk Reynisdóttir, Bylgja Hrönn Baldursdóttir og Þorbjörn Sigurðsson. 8. Kosið var í kjörstjórn samkvæmt 8.gr.laganna og voru eftirtaldir valdi rsem aðalmenn: Atli Már, Eiríkur Óskar, Hlynur Steinn, Sigurður Betúel og Þorvaldur Sigmarsson. Varamenn voru kjörnir þeir; Guðmundur Ingi Rúnarsson, Guðbrandur Hansson og Jens Gunnarsson 9. Tveir skoðunarmenn voru kjörnir og hlutu Guðmundur Ingi Rúnarsson og Magnús Jónasson áframhaldandi kosningu. 10. Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum 11. Önnur mál. Rætt um vaktkerfismál og kom sú hugmynd úr sal að lögreglumenn myndu vinna eins vaktarúllu eins og fangaverðir LRH vinna og settur yrði inn aukadagur til að fylla upp í vinnuskyldu. Aðgerðar og skipulagsdeild gæti séð um að skipuleggja svo starfsdag 1.sinni í mánuði. Rætt um vinnuhóp vegna komandi kosninga og að sá hópur myndi vinna aðhugsanlegum breytingum á núverandi kerfi eða búi til nýtt kerfi. Mikið var rættum þau brot sem orðið hafa á samkomulaginu síðan það tók gildi og óttuðust mennað sumarið yrði ekki gott hvað varðar uppfyllingu á samkomulaginu. 12. Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 18:30. |